Markaðsvirði eignar
Kr113.300.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Lúxus villur á hinu glæsilega íbúðarsvæði Santa Rosalía. Einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í gögngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þá þjónustu sem hægt er að hugsa sér.
Um er að ræða 6 glæsivillur en 3 eru nú þegar seldar. Einstaklega vel hönnuð og nútímaleg einbýli á tveimur hæðum með einkasundlaug, þaksvölum og bílastæði inni á lóðinni. Einnig er stór og rúmgóður kjallari í hverri eign. Villurnar eru á bilinu 329fm - 347fm.
Gengið er inn í stóra og bjarta forstofu. Þegar lengra er farið inn í húsið blasir við þér glæsilegt eldhús með nóg af skápaplássi en opið er frá eldhúsi inn í stofu og borðstofu. Inn af eldhúsinu er rúmgott þvottahús. Frá stofunni er gengið út á veröndina en þar er 21 fm einkasundlaug og stigi upp á 56 fm þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar allan daginn, allt árið.
Master svítan er rúmlega 21 fm stór en þar er einkabaðherbergi og stór walk-in fataskápur. Hin 2 svefnherbergin eru bæði með einkabaðherbergi og innbyggða fataskápa með meira en nóg af plássi. Þegar gengið er stigann niður í kjallara blasir við rúmlega 150 fm rými sem býður upp á marga möguleika og þar er annað baðherbergi.
Verð frá 780.000-935.000. Innifalið í verði er loftkæling, raftæki í eldhús ásamt þvottavél og þurrkara. Gólfhiti á baðherbergjum. Húsið er afhent með pre-uppsetningu á hitunarkerfi fyrir sundlaugina. Á þaksvölum er gengið frá því þannig að allt er tilbúið fyrir uppsetningu á útieldhúsi og heitum pott.
Virkilega flottar eignir og kaup á eign í Santa Rosalía er góð fjárfesting á einstöku svæði.
Meira hægt að sjá um svæðið hér: https://spanarheimili.is/santarosalia/
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is