Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0401
€. 397.000

Glæsilegar lúxus villur í Santa Rosalia

Kr59.700.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 218 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
67 km
11 km
-
2 km

Markaðsvirði eignar

Kr59.700.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Glæsilegar villur á einni hæð sem allar snúa í suður í hinni stórglæsilegu vatnaveröld Santa Rosalía.
Einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu sem hægt er að hugsa sér.

Um er að ræða takmarkað magn glæsilegra einbýla á einni hæð með kjallara og þaksvölum.
Einstaklega vel hönnuð og nútímaleg einbýli með einkasundlaug, þaksvölum og bílastæði inni á lóðinni. Einnig er stór og rúmgóður kjallari í hverri eign. Villurnar eru á bilinu 218 fm - 255 fm með kjallara. Gert er ráð fyrir tengingum fyrir hleðslu rafmagnsbíla.
Lóðir frá 213 fm - 300 fm.

Eignirnar eru með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Öll svefnherbergin hafa stóra innbyggða fataskápa með meira en nóg af plássi og aðgengi út á verönd. Master svítan er en-suite og er þá með einkabaðherbergi. Hiti í baðherbergis gólfum.

Verð frá 397.000€
Innifalið í verði er loftkæling, raftæki í eldhúsi og lýsing.

Virkilega flottar eignir og kaup á eign í Santa Rosalia er góð fjárfesting á einstöku svæði.

Meira er hægt að sjá um svæðið hér:  https://spanarheimili.is/santarosalia/

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.