Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0625
€. 230.000

Glæsilegar íbúðir við ströndina í Santa Pola

Kr34.600.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 80 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
11 km
-
-
16 km

Markaðsvirði eignar

Kr34.600.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Nýr og glæsilegur íbúðakjarni í Santa Pola, aðeins um 100m frá Tamarind ströndinni. Kjarninn samanstendur af 3 íbúðabyggingum með alls 95 íbúðum. Í blokk 1 og 3 eru 35 íbúðir og í blokk 2 eru 25 íbúðir. Stærð íbúða er á bilinu 80 til 106 fm og svalir eru frá 14 til 17 fm. Íbúðirnar eru einstaklega bjartar og opnar og í boði eru 2 eða 3 svefnherbergja eignir.
Að auki er hægt að fá penthouse íbúðir með frábæru útsýni yfir miðjarahafið og allt að 100 fm. einka þaksvölum með nuddpotti, útieldhúsi og sturtu.

Í kjarnanum er glæsilegur sameiginlegur sundlaugagarður, sólbaðsaðstaða, útisturtur og leiksvæði fyrir börn. Kjarninn er lokaður og eru bílastæði innan lóðar.

Verð frá 230.000 til 620.000€

Tilbúið til afhendingar í lok árs 2024.

 

Nánar um svæðið:

Bærinn Santa Pola er staðsettur á Costa Blanca suður í um það bil 20 mínútna akstursfjarlægð suður af flugvellinum í Alicante. Santa Pola er þekkt fyrir sögulegar minjar, merkilega höfn sína, vötn, saltminni og strendur undir merkjum Bláa fánans; og tákn um gæði. Santa Pola er þekkt fyrir fjölbreytt landslag, allt frá útsýni til villtra og síbreytilegra sandalda og svo til fjarlægra fjalla. Höfn bæjarins er einstök, staðsett í miðju kastala og er umlukin einstakri náttúru. Ferðaþjónusta er meginatvinnuvegur Santa Pola en þar er að finna mikla saltverksmiðju sem er mikið kennileyti þar um slóðir. Í höfninni eru að staðaldri mesta magn fiskibáta allra hafna við Miðjarðarhafið. Santa Pola tengjast svo nokkrar dásamlegar strendur, þar á meðal yfir 4 kílómetrar af fínum sandi og kristaltæru vatni. Við Santa Pola er tilvalið að iðka fjölbreytilegar sjóíþróttir: Brimbretti, siglingar, sund, veiði, þotur og fallhlífarstökk við ströndina. Íbúar í Santa Pola eiga kost á líflegu félagslífi allt árið, bæði vegna fjölþættrar þjónustu sem þar má finna og svo nálægðar við borgina Alicante sem er staðsett aðeins nokkurra kílómetra fjarlægð.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.