Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0718
€. 255.000

Glæsilegar íbúðir í Guardamar del Segura – ALLT INNIFALIÐ

Kr38.300.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 73 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
27 km
1 km
1 km
10 km

Markaðsvirði eignar

Kr38.300.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili Kynna:

AMANECER DE ́LUXE - LAS DUNAS  er íbúðarkjarni sem er nýtt verkefni á vegum Duly, eins besta byggingaraðila á Costa Blanca svæðinu. Þessi kjarni er staðsettur í útjaðri Guardamar del Segura og fyrir neðan N-332. Ekki er nema um 7 mínutna ganga í smábátahöfnina, ströndina og friðlýst skógarsvæði. Allar íbúðirnar snúa út að Rio de Segura ánni.

Íbúðirnar eru 2 svefnherbergja og 2 baðherbergja (hiti í gólfum), og eru frá 73 fm til 103 fm. Í boði eru jarðhæðir með verönd og einkagarði, miðhæðir með stórum svölum/verönd, og þakíbúðir með þakverönd. Kjarninn er 9 hæðir, 32 íbúðir og eru einungis tvær penthouse íbúðir í boði.
Allar íbúðirnar eru með vel skipulögðu eldhúsi, stofu og borðstofu í opnu rými sem opnast út á stórar svalir eða út í garð. Íbúðirnar koma með fallegum nútímalegum innréttingum og eru sérstaklega bjartar.

Sameiginlega svæðið er einstaklega glæsilegt en þar má finna sundlaugar, græn svæði, leiksvæði fyrir börn og í bílakjallar eru einkastæði fyrir hverja íbúð.

TILBOÐ TIL LOKA MAÍ 2024.
Allt innifalið í verðinu, öll húsgögn, eldhústæki, raftæki, aircon (heitt og kalt), hlerar fyrir gluggum, allt lín sbr. rúmföt, handklæði ofl. Sem sagt = ALLT INNIFALIÐ !

Verð frá 255.000 til 501.000 evrur (penthouse íbúðir).

Um svæðið:

Guardamar er fallegur strandbær með allri almennri þjónustu, sbr. verslunum, veitingastöðum ofl. en bærinn liggur við syðri hluta Rojales og er stutt á ströndina á La Marina eða Guardamar. Næsti golfvöllur er La Marguesa í Rojales en einungis tekur um 10 mínutur að aka þangað.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.