Markaðsvirði eignar
Kr31.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegar íbúðir í byggingu staðsettar á besta stað í Dehesa de Campoamor sem er næsti bær við Cabo Roig og eru aðeins nokkrar mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard. Einnig er stutt að ganga á ströndina og í almenna þjónustu og veitingastaði.
Þetta eru þrjár einingar / blokkir í stórum lokuðum kjarna með lyftum, bílakjallara, geymslum og þremur sameiginlegum sundlaugum. Af þessum sundlaugum verður ein upphituð innisundlaug sem hægt verður að nota allt árið og ein barnalaug.
Í garðinum verður líka líkamsrækt og sameiginlegt svæði á þakinu til þess að slappa af. Einnig verður leiksvæði fyrir börn í garðinum.
Um er að ræða 2 eða 3 svefnherbergja íbúðir, 2 baðherbergi og annaðhvort svalir eða verönd. Eldhúsið er stórt og opið til borðstofu / stofu og frá stofu er gengið út á svalir eða verönd. Svefnherbergin eru með stóra og flotta fataskápa og master svefnherbergið er með einka baðherbergi.
Í öllum íbúðum er dyrasími með myndavél og er eldhúsið fullbúið með öllum tækjum. Hægt er að kaupa stæði í bílakjallara með hleðslustað fyrir rafbíl og geymslu gegn aukagjaldi.
Verð frá 208.000 til 398.000 evrur.
Áætlaður afhendingartími íbúða er:
Áfangi 1: Eftir Ágúst 2023 UPPSELDUR
Áfangi 2: Mars 2024 UPPSELDUR
Áfangi 3: Lok árs 2024
Áfangi 4 og 5 : 2025