Markaðsvirði eignar
Kr48.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegur íbúðarkjarni í Torre de la Horadada stutt frá fallegu ströndinni "Playa de las Higuericas" og í göngufæri frá veitingastöðum og annarri þjónustu. Torre de la Horadada er strandbær ca. 10 mínútum frá Orihuela Costa svæðinu og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni vinsælu.
Um er að ræða fjölbýlishús á þremur hæðum. Í boði eru íbúðir á jarðhæð með einkaverönd og einkasundlaug og svo þakíbúðir með stórum þaksvölum þar sem þú finnur fallegt hannað svæði með 7 m2 einkasundlaug.
Íbúðirnar eru 84 m2 með 3. svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og eru íbúðirnar hannaðar í nútímalegum stíl með opnu skipulagi þar sem eldhús, stofa / borðstofa er í opnu alrými með aðgengi út á verönd.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Verð frá 335.000 €
Nánar um svæðið:
Pilar de la Horadada er staðsett ca. 3 kílómetra inn í landið frá ströndinni við El Mojon og Torre de la Horada.
Það er um það bil 25 mínútna akstursfjarlægð norður af Murcia San Javier flugvellinum og um það bil einnar klukkustundar aksturs suður af flugvellinum í Alicante. Svæðið var að mestu leyti landbúnaðarsvæði, umkringt markaðsgörðum, aldingarði, sítruslundum og sveitabæjum en síðastliðin ár hefur risið upp öflugt og aðlaðandi svæði sem má segja að sé mjög miðsvæðið ef miðað er við strendur, golfvelli, verslanir ofl. Pilar de la Horada er syðsti bærinn á Costa Blanca og er á bæjarmörkunum við Murcia hérað og skemmtilega strandbæji eins og San Pedro og San Javier. Það má fullyrða að á þessu svæði fær maður mikið fyrir peninginn.