Markaðsvirði eignar
Kr27.400.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegur íbúðarkjarni í framkvæmdum í San Miguel de Salinas hinum dæmigerða spænska bæ, þar sem matvörubúðir, veitingastaðir og önnur þjónusta er í göngufjarlægð. Alicante flugvöllurinn er í ca. 40 mín akstri frá San Miguel de Salinas.
Íbúðarblokk sem verður á 8 hæðum og sem snýr í norðvestur átt, samanstendur af sameiginlegum sundlaugargarði í miðju kjarnans, líkamstæktaraðstöðu og leikvöll fyrir krakkana. Þetta verða samtals 165 glænýjar íbúðir á jarðhæð og miðhæðum og þar af 30 penthouse íbúðir.
Allar íbúðirnar á jarðhæð verða hannaðar í nútímalegum stíl með hágæða efnum og opnu skipulagi og verða með einkagarð/verönd og eru frá 67 m2 upp í 82 m2 með 2-3 svefnherbergi og 2 baðherbergi.
Verð allt frá 179.900€ - 289.900€
Tilbúið til afhendingar í lok sept 2024
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]
Nánar um San Miguel de Salinas:
Hinn dæmigerði spænski bær er San Miguel de Salinas. Hann er
staðsettur á hæsta punkti sveitar sinnar við Costa Blanca
suður. Bærinn nýtur útsýnis yfir Torrevieja-saltvötnin og ótal
sítrónu- og appelsínu akra í grenndinni sem meðal annars gerir
hann ákjósanlegan jafnt til fastrar búsetu sem og styttri
dvalar. Helsti iðnaður bæjarbúa er þjónusta og landbúnaður svo
sem sítrónurækt, melónu- og ólífurækt. Bærinn býr yfir sjarma
Miðjarðarhafsþorpsins. Þar má njóta viku markaðarins, sækja
hellana í bænum heim eða taka þátt í hátíðum sem haldnar eru
reglulega. Dýrlingadagur San Miguel er til dæmis haldinn
hátíðlegur ár hvert og hefjast hátíðarhöld jafnan viku fyrir
dýrlingadaginn sjálfan sem er 29. september. Matarmenning
bæjarbúa einkennist af hinum hefðbundna næringarríka sveitamat
„gazpacho manchego“ – girnilegur réttur unnin úr tómötum,
sérstöku brauði og grænmeti ásamt kanínukjöti, hrísgrjónum og
soði. Allt þetta og margt fleira gerir bæinn að einum af
uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í
sólinni eða vilja komast í frí við Miðjarðarhafsströndina. Öll
þjónusta er innan seilingar í þessu sjarmerandi litla bæ.