Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1355
€. 590.000

Glæsilegar eignir í Santa Rosalia

Kr87.800.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 114 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 3 baðherbergi
67 km
10 km
1 km
5 km

Markaðsvirði eignar

Kr87.800.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

 

Nýr áfangi af þessum glæsilegu eignum var að koma í sölu en þær eru staðsettar í hinu einstaka Santa Rosalía Lake and Life Resort. Þetta eru eignir sem verða fljótar að fara! 

 

Santa Rosalía er algjörlega einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu sem hægt er að hugsa sér.

Santa Rosalía Resort er sérhannað fyrir íbúa til þess að njóta og slaka á. Innan svæðisins er að finna stór græn svæði með leiksvæði fyrir börn og fullorðna og þar er hægt að stunda hinar ýmsu íþróttir, s.s.  körfubolta, golf, og strandblak. Hlaupa- og hjólastígar liggja umhverfis allt svæðið og upplagt er að nýta piknikk svæðin til að grilla með stórfjölskyldunni. Síðast en ekki síst er þarna að finna kristaltært og seiðandi lónið þar sem hægt er að stunda fjölbreytt vatnasport sem og klúbbhús með veitingahúsi og líkamsræktaraðstöðu.

 

Nánari upplýsingar um Santa Rosalia svæðið má sjá hér https://spanarheimili.is/santarosalia

 

Eignirnar eru með 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi. Eldhúsið er stórt og nútímalegt og er opið til stofu/borðstofu. Stór rennihurð sem fellur inn í vegginn opnast úr borðstofu út á verönd og rýmið inni og úti renna saman í eitt. Öll svefnherbergin eru með innbyggða fataskápa, stóra glugga og útgengt er á rúmgóðar svalir úr herbergjum á efri hæð. Svefnherbergin á efri hæð eru jafnframt mastersvítur með einkabaðherbergi og í öðru þeirra er  fataherbergi. Á lóðinni er einkasundlaug ásamt frábærri verönd og garði og bílastæði er á lóð. Stórar þaksvalir bjóða upp á frábært útsýni yfir svæðið og akrana í kring og 65 m2 kjallari fylgir sem hægt er að innrétta eftir eigin óskum (kostnaður við innréttun kjallara bætist við kaupverð).

 

Þetta eru gæðaeignir á frábæru verði. Verð frá 505.000€.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.