Markaðsvirði eignar
Kr59.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsileg einbýli í nýjum kjarna í Benijófar þar sem stutt er að nálgast næstu þjónustu, veitingastaði, matvörubúðir o.s.f.v. allskyns veitingastaðir er hægt að finna í Benijófar. Einnig er Habaneras verslunarmiðstöðin, Guardamar ströndin og Aquapark í Rojales í 10 mínútna akstursfjarlægð frá.
Hver eign hefur lóð allt frá 206 m2 og allar eignirnar eru 137 m2 með 3 svefnherbergi, 3 baðherbergi, nútímalegu opnu eldhúsi, rúmgóðri stofu með aðgengi út á verönd með notalegu útisvæði og einkasundlaug. Frá einu svefnherberginu er aðgengi út á svalir og einnig eru 49 m2 þaksvalir, þar sem hægt er að njóta sólarinnar í rólegheitum. Hiti í gólfum á baðherbergjum.
Innifalið í verði eru öll eldhústæki, 3x6m sundlaug, aircon (heitt og kalt), rafmagnshlerar fyrir gluggum og þaksvalir (solarium).
Eignirnar verða tilbúnar til afhendingar í Mars 2025
Verð frá 395.000€ - 410.000 €.
Um svæðið.
Benijofar er lítill og fallegur bær staðsettur á suður Costa Blanca svæðinu. Næstu bæjir eru Rojales, Ciudad Quesada og strandbærinn Guardemar De Segura en þessir bæjir eru innan við 5-10 mínutur frá í akstri.
Stutt er til Torrevieja og Guardamar del Segura. Í Benijofar er fallegur miðbær þar sem öll þjónusta er við hendina eins og veitingastaðir, matvöruverslanir, almennar verslanir og svo framvegis. Og ekki má gleyma McDonald´s.
Margir Íslendingar hafa með okkar aðstoð fundið draumaeignina í Benijofar.
Vatnsskemmtigarðurinn Aquapark í Rojales er í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Benijofar og La Marquesa golfvöllurinn er í ca. 7 mínutna akstursfjarlægð. Til gamans má geta þess að nafnið Benijofar er sótt í Arabísku og merkir "Son of the pearl".
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]