Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0618
€. 199.000

Glæsilegar eignir í lúxus fjölbýli á Santa Rosalia Resort svæðinu

Kr29.900.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 68 fm
Fjöldi svefnherbergja 1 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 1 baðherbergi
67 km
10 km
1 km
5 km

Markaðsvirði eignar

Kr29.900.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Fjölbreytt og glæsilegt úrval 22 lúxus íbúða í glænýjum kjarna, "Encina 57" á Santa Rosalía Resort svæðinu.
Um er að ræða 1, 2 eða 3 svefnherbergja eignir í 5. hæða fjölbýli með sameiginlegum sundlaugagarði.
Fjölbreytt úrval eigna í boði eða glæsilegar penthouse íbúðir með stórum þaksvölum, jarðhæðir með einkagarði eða íbúðir á 2., 3. eða 4. hæð með svölum sem snúa út í sundlaugagarð. Kjarninn er aflokaður innan Santa Rosalia svæðisins og er glæsilegur sameiginlegur sundlaugagarður ásamt grænum svæðum fyrir íbúa kjarnans.

Verð frá 199.000 -til 509.000 evrur.
TILBOÐ TIL ÁRAMÓTA - BÍLASTÆÐI OG GEYMSLA Í BÍLAKJALLARA INNIFALIÐ.

Um svæðið:
Santa Rosalía er algjörlega einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu sem hægt er að hugsa sér.

Santa Rosalía Resort er sérhannað fyrir íbúa til þess að njóta og slaka á. Innan svæðisins er að finna stór græn svæði með leiksvæði fyrir börn og fullorðna og þar er hægt að stunda hinar ýmsu íþróttir, s.s.  körfubolta, golf, og strandblak. Hlaupa- og hjólastígar liggja umhverfis allt svæðið og upplagt er að nýta piknikk svæðin til að grilla með stórfjölskyldunni. Síðast en ekki síst er þarna að finna kristaltært og seiðandi lónið þar sem hægt er að stunda fjölbreytt vatnasport sem og klúbbhús með veitingahúsi og líkamsræktaraðstöðu.

 

Nánari upplýsingar um Santa Rosalia svæðið má sjá hér https://spanarheimili.is/santarosalia

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.