Markaðsvirði eignar
Kr264.500.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Þessi glæsilega villa er staðsett á frábærum stað í Torrevieja þar sem þú ert í göngfjarlægð frá ströndinni og stutt er í næstu þjónustu og veitingastaði á svæðinu. Torrevieja er eftirsóttur áfangastaður meðal ferðamanna á spáni þar sem borgin býður upp á margskonar þjónustur og afþreyingar. Alicante flugvöllurinn er ca. 40-50 min frá Torrevieja.
Húsið situr á 1012 m2 lóð með flotta einkasundlaug, fallega verönd og paddle tennis völl.
Húsið er 335 m2 á tveimur hæðum með 4 svefnherbergjum 3 baðherbergjum. Á jarðhæðinni finnur þú stóra stofu, nútímalegt eldhús sem er opið til borðstofu, hjá eldhúsinu finnur þú þvottaherbergi, eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi. Hin þrjú svefnherbergin og hin tvö baðherbergin má finna á efri hæðinni. Einnig eru stórar þaksvalir þar sem þú getur notið sólarinnar með flottu sjávarútsýni.
Verð 1.750.000 €
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á
Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag
sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum
sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins
utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af
hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja
njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er
Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með
skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt
og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir
að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á
ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra
innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.