Markaðsvirði eignar
Kr239.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsileg villa með frábært útsýni í Altea. Stutt er í flest alla þjónustu og veitingastaði. Aðeins eru um 10 mínútur að keyra á ströndina. Einnig eru 20 mínútur að keyra til Benidorm og þar er vinsæli skemmtigarðurinn Terra Mítica.
Þessi eign er byggð á 1075 m2 lóð þar sem er bílskúr, innkeyrsla, stór verönd og glæsileg einkasundlaug. Villan er 225 m2 og er með 4 svefnherbergi og 4 baðherbergi ásamt 1 klósetti.
Á jarðhæð eru öll svefnherbergin og eru þau öll með sér baðherbergi og innbygða fataskápa. Eitt af svefnherbergjunum er master svíta og er með stórt baðherbergi ásamt veglegu fataherbergi. Hægt er að ganga út frá öllum svefnherbergjum á sameiginlega verönd. Á annarri hæð er allt opið, eldhúsið er nútímalegt og með nóg af skápaplássi og er opið til stofu og borðstofu, frá annarri hæð er gengið út á verönd þar sem er æðislegt ýtsýni til sjávar. Einnig er rúmgott þvottahús á annarri hæðinni.
Í eigninni er lyfta, loftkælingarkerfi sem hitar og kælir, og öll raftæki í eldhús fylgja með.