Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0768
€. 780.000

Glæsileg villa í San Miguel de Salinas

Kr117.200.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 192 fm
Fjöldi svefnherbergja 4 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 3 baðherbergi
42 km
7 km
-
3 km

Markaðsvirði eignar

Kr117.200.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Glæsileg 4 svefnherbergja villa í San Miguel de Salinas með frábæru útsýni alveg niður að Miðjarðarhafinu.
Stutt er í veitingastaði og almenna þjónustu eins og matvöruverslanir, apótek og annað í San Miguel.

Það eru fjölmargir golfvellir staðsettir á svæðinu og það tekur um 15 mínútur að keyra niður að Orihuela Costa þar sem þú hefur margar fallegar strendur, Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina og fleira.

Um er að ræða eign sem situr á 389 m2 lóð og er 192 m2 á tveimur hæðum með 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi.
Og á þaksvölum er að auki 4 svefnherbergið.

Á jarðhæðinni eru 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt flottu nútímalegu eldhúsi sem er opið til stofu. Frá stofunni er gengið út á verönd með einkasundlaug. Efri hæðin samanstendur af hjónaherberginu sem er en-suite og er þar af leiðandi með einkabaðherbergi og það eru stórar svalir sem eru með einstakt útsýni yfir grænu svæðin í kring og alveg niður að Miðjarðarhafinu. Lyfta er í villunni á milli hæða. Sundlaugin er 7 x 4 metrar með fossi.
Að auki er hægt að útbúa 2 auka svefnherbergi í kjallara eignarinnar.
Sannanlega glæsileg lúxusvilla !

Verð 780.000€ + 14-15% kostnaður. Tilbúin til afhendingar (Key Ready)

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]

 

Nánar um svæðið:

 

Hinn dæmigerði spænski bær er San Miguel de Salinas. Hann er staðsettur á hæsta punkti sveitar sinnar við Costa Blanca suður. Bærinn nýtur útsýnis yfir Torrevieja-saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínu akra í grenndinni sem meðal annars gerir hann ákjósanlegan jafnt til fastrar búsetu sem og styttri dvalar. Helsti iðnaður bæjarbúa er þjónusta og landbúnaður svo sem sítrónurækt, melónu- og ólífurækt. Bærinn býr yfir sjarma Miðjarðarhafsþorpsins. Þar má njóta viku markaðarins, sækja hellana í bænum heim eða taka þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Dýrlingadagur San Miguel er til dæmis haldinn hátíðlegur ár hvert og hefjast hátíðarhöld jafnan viku fyrir dýrlingadaginn sjálfan sem er 29. september. Matarmenning bæjarbúa einkennist af hinum hefðbundna næringarríka sveitamat „gazpacho manchego“ – girnilegur réttur unnin úr tómötum, sérstöku brauði og grænmeti ásamt kanínukjöti, hrísgrjónum og soði. Allt þetta og margt fleira gerir bæinn að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja komast í frí við Miðjarðarhafsströndina. Öll þjónusta er innan seilingar í þessu sjarmerandi litla bæ.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.