Markaðsvirði eignar
Kr120.200.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsileg og nútímaleg eign staðsett á góðum stað í Los Balcones þar sem stutt er að komast á næstu strendur á Orihuela Costa svæðinu ásamt vinsælu verslunarmiðstöðinni Zenia Boulevard og næstu golfvelli á svæðinu
Þetta er einbýli sem situr á 1,200 m2 lóð og er þar af leiðandi með stóran garð með einkasundlaug og flottri verönd. Þú keyrir í gegnum rafmagnshlið þar sem þú hefur innkeyrslu inn í bílskúr í kjallaranum. Bílskúrinn er 160 m2 og þar ert þú með 2 geymslur.
Húsið er á einni hæð með bílskúr og geymslu í kjallaranum. Það eru 3 rúmgóð svefnherbergi, öll með einkabaðherbergi og fataherbergi. Það er stórt og bjart alrými með rúmgóðri setustofu og borðstofu með beinu aðgengi út á verönd og nútímalegt og flott eldhús sem er aflokað frá stofu/borðstofu og frá eldhúsinu ertu með þvottahús.
Húsið er selt innréttað með húsgögnum og það er loftkæling og gólfhiti í öllu húsinu.
Verð 805.000 €
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.