Markaðsvirði eignar
Kr60.100.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsileg villa á einni hæð með stórri lóð og einkasundlaug. Þessi eign er staðsett í La Herrada nálægt Los Montesinos. La Herrada er bær sem er aðeins nokkrar mínútur frá Torrevieja. Stutt er á ströndina og í golf, og í kring er hægt að nálgast flest alla þjónustu.
Þessi villa er sú eina af 53 sem verður byggð á einni hæð. Lóðin eru rúmir 410 m2 og húsið sjálft verður 115 m2.
Það verða 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Gengið er inn í forstofuna og þaðan er opið til stofu. Eldhúsið er stórt og er líka opið til stofu og borðstofu. Frá stofu og borðstofu er hægt að ganga út á verönd þar sem er einkasundlaug. Öll 3 svefnherbergin eru yfir 11 m2 í stærð og eru með rúmgóða og flott fataskápa, einnig er ein master svíta sem er með sér baðherbergi.
Verð 404.900€.