Markaðsvirði eignar
Kr39.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsileg raðhús / bungalows (aðeins 7 stk. ) í glænýjum og glæsilegum kjarna, "Encina 57" á Santa Rosalía Resort svæðinu.
Um er að glæsileg hús með kjallara og þaksvölum. Í kjallara, sem er um 45 fm er hægt að útbúa auka herbergi, leiksvæði eða annað. Þaksvalirnar sem eru um 61 fm eru með fallegu útsýni yfir sundlaugasvæðið en húsin snúa í s-vestur.
Kjarninn er aflokaður innan Santa Rosalia svæðisins og er glæsilegur sameiginlegur sundlaugagarður ásamt grænum svæðum fyrir íbúa kjarnans.
Verð frá 265.000 -til 290.000 evrur.
TILBOÐ TIL ÁRAMÓTA - BÍLASTÆÐI OG GEYMSLA Í BÍLAKJALLARA INNIFALIÐ.
Um svæðið:
Santa Rosalía er algjörlega einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu sem hægt er að hugsa sér.
Santa Rosalía Resort er sérhannað fyrir íbúa til þess að njóta og slaka á. Innan svæðisins er að finna stór græn svæði með leiksvæði fyrir börn og fullorðna og þar er hægt að stunda hinar ýmsu íþróttir, s.s. körfubolta, golf, og strandblak. Hlaupa- og hjólastígar liggja umhverfis allt svæðið og upplagt er að nýta piknikk svæðin til að grilla með stórfjölskyldunni. Síðast en ekki síst er þarna að finna kristaltært og seiðandi lónið þar sem hægt er að stunda fjölbreytt vatnasport sem og klúbbhús með veitingahúsi og líkamsræktaraðstöðu.
Nánari upplýsingar um Santa Rosalia svæðið má sjá hér https://spanarheimili.is/santarosalia
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]