Markaðsvirði eignar
Kr40.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsileg parhús staðsett í Los Belones við sunnanvert Mar Menor innhafið. Um er að ræða eignir á tveimur hæðum með 2 eða 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Opið alrými er á neðri hæð með eldhúsi, stofu og borðstofu ásamt gestasalerni og geymslu. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi og þaðan er gengið upp á 45 fm þaksvalir.
Góður sérgarður fylgir eigninni með einkasundlaug og undir henni er 87 fm bílageymsla/kjallari með auka herbergi. Eignirnar eru samtals 250 fm að stærð á 270 fm lóð.
Um að ræða 4 hús, 3 þeirra eru með 3 svefnherbergjum og eitt með 2 herbergjum. Eitt hús er tilbúið til afhendingar sumarið 2023 en hin afhendast einungis 6 mánuðum eftir undirritun kaupsamnings.
Verð frá 279.950€ til 439.500€
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Cartagena er með stærri sveitarfélögum á Spáni hvar finna má hafnarborg og flotastöð í Murcia-héraði í suðausturhluta Spánar. Borgin var stofnuð af Karþagómönnum um 220 fyrir Krists burð. Um er að ræða sveitarfélag sem teygir sig frá Mar Menor í norðri, gegnum Los Alcazares og að strönd Mazarrón í suðri. Þar má finna úrval fasteigna og afbragðs þjónustu. Í því sambandi má nefna Mar de Cristal, Los Urrutias, Los Nietos, Playa Honda og Cabo de Palos, sem er frægt fyrir höfn sína og vita. Borgin blómstraði á rómverska tímabilinu og meðal margra rómverskra rústa sem þar má sjá eru útileikhús frá 1. öld fyrir Krists burð og Case de la Fortuna; einbýlishús með einstökum veggmyndum og mósaík.