Markaðsvirði eignar
Kr108.600.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsileg lúxus villa í Quesada sem er snyrtilegur og rólegur bær þar sem er stutt í flest alla þjónustu og veitingastaði. Aðeins eru um 10 mínútur að keyra í Torrevieja og aðeins um 5 mínútur að keyra í verslunarmiðstöðina Habaneras.
Byggð á 500 m2 lóð með einkasundlaug, stórum garði, frábæru grillsvæði og bílskúr fyrir 2 bíla. Eignin er byggð á 3 hæðum og er með 4 svefnherbergi og 4 baðherbergi. Það er 130 m2 kjallari þar sem er 2 dyra bílskúr, stærðar þvottahús og eitt svefnherbergi með einkabaðherbergi. Á jarðhæð er stórt 22 m2 eldhús með meira en nóg af skápaplássi sem er opið til stofu/borðstofu. Frá stofu og eldhúsi er gengið út á flotta verönd sem leiðir út í garð og að einkasundlaug. Á jarðhæð er líka eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi. Á annarri hæð eru 2 master svítur og eru bæði svefnherbergin með sér baðherbergi og frá öðru herberginu er gengið út á 29 m2 svalir. Öll svefnherbergin eru með innbyggða fataskápa sem eru fullbúnir með skúffum og hillum.