Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0544
€. 299.000

Glæsileg íbúð með stórkostlegu útsýni í Altea Hills

Kr45.000.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 128 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
70 km
4 km
3 km
5 km

Markaðsvirði eignar

Kr45.000.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Sjarmerandi og kósý íbúð til sölu í Altea Hills, með heillandi sjávar- og fjallaútsýni. Þessi 3ja herbergja íbúð býður upp á allt sem þú þarft til að slaka á í fríinu og er líka tilvalin fyrir  fasta búsetu.

Eignin er líka áhugaverð góð fjárfesting til að leigja út strax eftir kaupin því öll húsgögn eru innifalin í verðinu.

Staðsett á ótrúlega rólegu svæði, í aðeins 4 km fjarlægð frá fallegum ströndum Altea, hér  getur  þú notið sólarinnar allt árið um kring frá verönd sem snýr í suður og slakað á í notalegri stofunni sem er í góðri stærð með opnum arni. Í íbúðinni eru 3 góð svefnherbergi, 2 baðherbergi og fullbúið eldhús með þvottahúsi.

Altea Hills er með 24/7 öryggisgæslu með vörðum, tennisvöllum og fallegum görðum.

VIÐAUKI: Öll húsgögn fylgja, ljósleiðari, opinn arinn, sameiginleg sundlaug og garður, einkabílastæði, 24/7 öryggisgæsla í Altea Hills

 

Um svæðið:

Hvíta strandþorpið Altea á er sannkölluð perla á Costa Blanca og hefur oft verið valið eitt af 10 fallegustu þorpum á Spáni. Vinsæli gamli bær Altea, sem er staðsettur á hæð, með fallegri kirkju og kirkjutorgi er mikilvægasta aðdráttarafl bæjarins. Hægt er að rölta um þröngar götur og njóta einstakrar fegurðar litlu húsana oft skreytt með sérstökum bohemian stíl. Þú getur verslað í einni af mörgum handverksverslunum, borðað góðan mat á einum af fjöldamörgum góðum veitingastöðum og notið stórkostlegs útsýnis yfir ströndina. Strendurnar í Altea eru fullkomnar fyrir strandfrí og laða til sín sólþyrsta ferðamenn alls staðar að úr heiminum.

Frábær staður fyrir alla sem vilja sameina sól og sjó með menningu og sögu.

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.