Markaðsvirði eignar
Kr47.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Falleg endabúð á jarðhæð í nýlegum vinsælum íbúðakjarna í Villamartín, í hjarta Orihuela Costa svæðisins. Íbúðin er einstaklega vel staðsett með tilliti til allrar þjónustu, Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er örskammt frá og strendur Orihuela Costa í um 3 km fjarlægð.
Um er að ræða íbúð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum sem snýr í suður. Komið er inn í stórt opið rými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Rýmið er bjart með stórum gluggum og út frá stofu er rúmlega 150 fm verönd, þar af er 20 fm sólstofa sem stúkuð er af með glerlokun. Útsýni er yfir sundlaugargarðinn og aðgengi að honum beint af verönd. Þrjár sameiginlegar sundlaugar eru í garðinum, þar af er ein upphituð og yfirbyggð. Íbúðinni fylgir stórt bílastæði og geymsla í bílakjallara. Hluti af húsgögnum getur fylgt eftir samkomulagi.
Þetta er vönduð og glæsileg eign á frábærum stað og stoppar ekki lengi!
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is