Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1115
€. 549.500

Glæsileg einbýlishús í Los Belones

Kr82.700.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 280 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 3 baðherbergi
77 km
4 km
-
18 km

Markaðsvirði eignar

Kr82.700.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Glæsileg einbýlishús staðsett í Los Belones við sunnanvert Mar Menor innhafið. Um er að ræða eignir á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Rúmgott opið alrými er á neðri hæð með eldhúsi, stofu og borðstofu ásamt 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Á efri hæð er þriðja svefnherbergið auk baðherbergis og fataherbergis og þaðan er beint útgengi á 10 fm svalir. Einnig er útgengt af hæðinni á 44 fm sólarsvalir.

Góður garður fylgir eigninni með einkasundlaug og undir henni er 160 fm kjallari með geymslu, baðherbergi og bílageymslu. Eignin er samtals 280 fm að stærð á 360 fm lóð.

Einungis er um að ræða 2 hús í þessari lúxusútgáfu og er annað þeirra tilbúið til afhendingar sumarið 2023 en hitt einungis 6 mánuðum eftir undirritun kaupsamnings.

Verð 549.500 og 659.500 €

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

 

Nánar um svæðið:

Cartagena er með stærri sveitarfélögum á Spáni hvar finna má hafnarborg og flotastöð í Murcia-héraði í suðausturhluta Spánar. Borgin var stofnuð af Karþagómönnum um 220 fyrir Krists burð. Um er að ræða sveitarfélag sem teygir sig frá Mar Menor í norðri, gegnum Los Alcazares og að strönd Mazarrón í suðri. Þar má finna úrval fasteigna og afbragðs þjónustu. Í því sambandi má nefna Mar de Cristal, Los Urrutias, Los Nietos, Playa Honda og Cabo de Palos, sem er frægt fyrir höfn sína og vita. Borgin blómstraði á rómverska tímabilinu og meðal margra rómverskra rústa sem þar má sjá eru útileikhús frá 1. öld fyrir Krists burð og Case de la Fortuna; einbýlishús með einstökum veggmyndum og mósaík.

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.