Markaðsvirði eignar
Kr137.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsieinbýli í Dehesa de Campoamor. Stutt er í flesta þjónustu og aðeins eru nokkrar mínútur að keyra á vinsæla Cabo Roig strippið. Þar er meðal annars að finna margaog fjölbreytta veitingastaði. Einnig eru aðeins um 10 mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Þessi eign er byggð á 500 m2 lóð og er á tveimur hæðum. Það verða 4 svefnherbergi og 4 baðherbergi ásamt ekta amerísku eldhúsi sem er opið til stofu og borðstofu. Á jarðhæð er eldhúsið, stofa, baðherbergi og eitt svefnherbergi sem er líka master svíta og er með einkabaðherbergi. Á neðri hæð eru 3 svefnherbergi og eitt þeirra er með einkabaðherbergi. Einnig er stærðar þvottahús á neðri hæðinni. Öll svefnherbergin eru með flotta innbyggða fataskápa.
Á lóðinni er stór og flottur garður ásamt verönd sem er fullkomið grillsvæði. Ásamt því þá er einkasundlaug sem hægt er að fá hitakerfi í.
Verð frá 910.000€.
Ath. Einnig er hægt að bæta við svefnherbergjum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is