Markaðsvirði eignar
Kr212.200.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsileg lúxus villa á Las Colinas golfsvæðinu. Svæðið er rómað fyrir fegurð og er hvert heimili þar staðsett og hannað með það fyrir augum að húsakynni falli vel að landslaginu og að íbúar njóti kyrrðar og næðis. Staðsetningin getur vart verið betri; hlíðar hins friðsæla dals eru vaxin sítrónu- og appelsínutrjám.
Stutt er einnig í flesta þjónustu og aðeins eru um 15 mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Þessi einstaka villa er sérhönnuð fyrir fagurkera. Með það í huga að geta slakað á og notið náttúrunnar þá er þessi eign með allt sem hægt er að ímynda sér. Byggð á 1040m2 einkalóð þar sem er stór garður, einkasundlaug og 75m2 2ja bíla bílskúr. Eignin er á tveimur hæðum en aðeins er bílskúr á neðri hæðinni.
Á jarðhæð er eldhúsið opið til stofu og borðstofu og frá stofunni er gengið út á veröndina. Einnig eru 3 svefnherbergi sem eru öll með einkabaðherbergi en það er ein master svíta og er það herbergi með stærra baðherbergi og fataherbergi. Það er líka gestabaðherbregi, þvottahús og geymsla í bílskúrnum.
Þessi eign er svo sannarlega einstök og staðsett á frábæru svæðu sem er fullkomið fyrir golfarann.
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferð á sérstöku tilboði á kr 119.900 pr mann. Um beint flug er að ræða ásamt gistingu sem er innifalið í verðinu en skoðunaferðargjaldið verður endurgreitt að fullu ef af kaupum á draumeigninni verður.