Markaðsvirði eignar
Kr40.500.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir : Fallegt gróið og lokað umhverfi, göngustígar, hlaupabrautir, sundlaugar, barnalaugar, líkamsræktraraðstaða, kaffihús, barir og mikil önnur afþreying sem gerir kjarnan einn þann flottastann á öllu Costa Blanca svæðinu,
Glænýjar og vandaðar 2 og 3 svefnherbergja íbúðir á frábærum stað á Playa Flamenca, stutt frá La Zenia og Villamartin hverfunum , 10 mín. göngufæri í Zenia Boulevard flottu verslunarmiðstöðina og aðeins 5 mín. rölt á vinsæla laugardagsmarkaðinn í Playa Flamenca, Einnig tekur ekki nema um 10 mín að rölta á fallegar strendur. Mercadona og úrval fleiri verslana og veitingastaða örstutt frá.
Um er að ræða ný fjölbýlishús með lyftu. Íbúðirnar eru með tveimur/þremur svefnherbergjum og einu/tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð eða miðhæðum, svalir eru frá 18 til 61m2 og eru jarðhæðirnar auk þess með 10 - 49m2 einkagarð. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaugum, heitum pottum og líkamsræktaraðstöðu, kaffihúsi börum ofl. Góð leikaðstaða fyrir börnin.
Stæði í bílakjallara og geymsla fylgir kaupum.
Stærð frá 74 m2 - 103 m2
Verð er frá 267.700 - 287.700€. fyrir íbúð með 2 herbergjum og 1 baðherbergi.
Verð er frá 281.900 - 328.900€. fyrir íbúð með 2 herbergjum og 2 baðherbergi.
Verð er frá 346.500 - 460.500€. fyrir íbúð með 3 herbergjum og 2 baðherbergi.
Tilbúnar til afhendingar í september og nóvember 2023.