Aftur á yfirlitssíðu

Parhús
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0031
€. 285.000

Flottar eignir í Gran Alacant – Santa Pola 

Kr42.800.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 93 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
7 km
3 km
-
22 km

Markaðsvirði eignar

Kr42.800.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Flottar eignir í Gran Alacant - Santa Pola, sem er fallegur spænskur bær við miðjarðarhafið.
Nálægðin við flugvöllinn í Alicante er aðeins 10 mínútur og aðeins 19 mínutur tekur að keyra í miðbæ Alicante frá Gran Alacant. Stutt er í veitingastaði, matvörubúðir og aðrar þjónustur á svæðinu.

Um er að ræða ný fjarka og parhús á tveimur hæðum í nýjum íbúðarkjarna með sameiginlegri sundlaug og leiksvæði í grænum garði í miðju kjarnans.

Eignirnar eru 93 m2 með 2. eða 3. svefnherbergjum og 2. baðherbergjum ásamt nútímalegu, opnu eldhúsi sem tengist stofu, en  frá stofunni er aðgengi út í garð/ verönd sem er frá 28.5 m2 til 50.4  m2. Á annari hæð eru 7.18 m2 svalir.

Verð frá 285.000 € - 312.000 €

Tilbúið til afhendingar í júní 2023

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]

 

Nánar um svæðið:

Santa Pola er staðsett á Costa Blanca suður í um það bil 20 mínútna akstursfjarlægð suður af flugvellinum í Alicante. Santa Pola er þekkt fyrir sögulegar minjar, merkilega höfn sína, vötn, saltminni og strendur undir merkjum Bláa fánans; og tákn um gæði. Santa Pola er þekkt fyrir fjölbreytt landslag, allt frá útsýni til villtra og síbreytilegra sandalda og svo til fjarlægra fjalla. Höfn bæjarins er einstök, staðsett í miðju kastala og er umlukinn einstakri náttúru. Ferðaþjónusta er meginatvinnuvegur Santa Pola en þar er að finna mikla saltverksmiðju sem er mikið kennileyti þar um slóðir. Í höfninni eru að staðaldri mesta magn fiskibáta allra hafna við Miðjarðarhafið. Santa Pola tengjast svo nokkrar dásamlegar strendur, þar á meðal yfir 4 kílómetrar af fínum sandi og kristaltæru vatni. Við Santa Pola er tilvalið að iðka fjölbreytilegar sjóíþróttir: Brimbretti, siglingar, sund, veiði, þotur og fallhlífarstökk við ströndina. Íbúar í Santa Pola eiga kost á líflegu félagslífi allt árið, bæði vegna fjölþættrar þjónustu sem þar má finna og svo nálægðar við borgina Alicante sem er staðsett aðeins nokkura kílómetra fjarlægð.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.