Aftur á yfirlitssíðu

Efri sérhæð
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1022
€. 269.000

Flottar efri sérhæðir í Pilar de la Horadada

Kr40.400.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 145 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
50 km
2 km
1 km
4 km

Markaðsvirði eignar

Kr40.400.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir: Flottar sérhæðir í framkvæmdum í Pilar de la Horadada þar sem stutt er að nálgast hversdags þjónustu, veitingastaði og er ekki langt frá næstu strönd á svæðinu. Pilar de la Horadada er bær 5-10 mínútum frá La Zenia svæðinu og vinsælu verslunarmiðstöðinni Zenia Boulevard.

Kjarninn kemur með grænum sameiginlegum garð með sundlaug og nuddpott ásamt barnaleiksvæði og líkamsrækt. Það fylgir einnig bílastæði og geymsla í bílakjallara með hverri eign, eldhúsraftæki, lýsing og útieldhús á þaksvölunum.

Hér er um að ræða neðri sérhæðir með einkagarð og efri sérhæði með einka þaksvölum.

Efri sérhæðirnar eru ca. 145 m2 með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt opnu eldhúsi, borðstofu/setustofu og aðgengi upp á einka þaksvalir sem eru ca. 62 m2 og koma með sumareldhúsi.

Verð frá 269.900 € - 319.900 €.

Tilbúnar til afhendingar í júlí og desember 2023

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]

SÉRTILBOÐ: Fólk sem taka frá eignir í þessum flotta kjarna fá húsgagnakaupauka andvirði 3.000 €.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.