Markaðsvirði eignar
Kr83.500.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Flott villa í Los Balcones staðsett í rólegu hverfi þar sem stutt er að komast í þjónustu og veitingastaði. Torrevieja borg er einnig í nokkra mínútna akstursfjarlægð frá eigninni ásamt ströndum á Orihuela Costa svæðinu og Zenia boulevard verslunarmiðstöðinni.
Einbýlið situr á rúmlega 1300 m2 lóð með aðgengi inn á lóðina í gegnum rafmagnshlið og er bílastæða pláss fyrir 3 bíla. Garðurinn kemur með ávaxtatrjám, útieldhúsi með innbyggðu grilli, geymslu og einkasundlaug.
Húsið sjálft er 193 m2 með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum ásamt flottu opnu eldhúsi, bjartri borðstofu og stórri setustofu með aðgengi út á verönd.
Það er einnig stigi upp á þaksvalirnar þar sem hægt er að njóta sólarinnar í friði.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is