Markaðsvirði eignar
Kr82.400.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Flott villa í Las Ramblas þar sem stutt er í flesta þjónustu og er nokkrum mínútu frá La Fuente verslunarmiðstöðinni þar sem hægt er að finna alls konar veitingastaði og þjónustu. Einnig er ekki langt að fara til að komast á næstu strendur og golfvelli á Orihuela Costa svæðinu.
Um er að ræða villu á tveimur hæðum og situr á 425 m2 lóð og hefur þar af leiðandi stóran og flottan garð með einkasundlaug og útigrillsvæði.
Húsið sjálft er 141 m2 og er með 3 svefnherbergi (tvö á jarðhæð og eitt á annarri hæð) og 2 baðherbergi. Einnig er rúmgott eldhús með þvottaherbergi, opið rými með borðstofu og stofu þar sem er aðgengi út á verönd. Frá svefnherberginu á annarri hæð má finna aðgengi út á rúmgóðar svalir með útsýni yfir nærliggjandi svæði í kring.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]