Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0356
€. 795.000

Flott villa á besta stað í Las Colinas

Kr119.500.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 160 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 3 baðherbergi
46 km
6 km
1 km
0.1 km

Markaðsvirði eignar

Kr119.500.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir: Flott villa á besta stað á hinu glæsilega svæði Las Colinas Golf. Falleg náttúra einkennir Las Colina ásamt glæsilegum golfvelli. 18 holu völlur sem hefur holtið verðlaunin "Besti golfvöllur Spánar" síðustu 3 ár. Gönguleiðir og aðstaða til íþróttaiðkana eru á svæðinu sem er í einungis 10 mínútna akstursfjarlægð frá hinni vinsælu verslanamiðstöð, Zenia Boulevard og ströndum Orihuela Costa. Lúxus hverfi sem girt er af og vaktað, tilvalið fyrir þá sem vilja frið og ró og fallega náttúru.

Þessi eign er byggð á 750 m2 lóð þar sem er stór og rúmgóð verönd ásamt einkasundlaug og frábæru sólbaðssvæði. Húsið er á tveimur hæðum og ofan á er solarium þar sem er hægt að njóta sólarinnar allan ársins hring. Björt og falleg eign þar sem eldhúsið er opið til stofu og borðstofu og frá stofunni er gengið út á veröndina. Svefnherbergin eru rúmgóð og eru öll með innbyggða fataskápa en eitt herbergið er master svíta og er því með einkabaðherbergi.

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.