Markaðsvirði eignar
Kr52.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Flott raðhús í glænýjum kjarna nokkrum metrum frá Higuericas ströndinni í Torre de la Horadada sem er notalegur bær ca í 15 mínútna fjarlægð frá La Zenia verslunarmiðstöðinni.
Um er að ræða tveggja hæða raðhús með þrem svefnherbergjum. Á jarðhæðinni er eitt svefnherbergi, eitt baðherbergi, stofa, borðstofa og eldhús. Svo má finna tvö önnur svefnherbergi á næstu hæð ásamt öðru baðherbergi. Frá öðru herberginu er aðgengi út á ca. 14 m2 svalir og þaðan er stigi upp á þaksvalir sem eru ca. 36 m2 þar sem hægt er að njóta útsýnið af miðjarðarhafinu og notið notalegra stunda undir sólinni. Hver eign kemur með verönd fyrir framan og aftan húsið frá ca. 38 m2 upp í 63 m2 og einkastæði í bílakjallara.
Í miðju kjarnans er glæsileg sameiginleg sundlaug og flott sólbaðsaðstaða ásamt öðru sem eigendur hafa aðgang að.
Verð frá 344.900 € upp í 399.900 €
Stærð ca. 87 m2
Eignirnar verða tilbúnar til afhendingar í september og desember 2023
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is