Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0512
€. 171.400

Fjölbýli í heilsukjarna í Mil Palmeras

Kr25.800.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 58 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
47 km
1 km
-
5 km

Markaðsvirði eignar

Kr25.800.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

"Riomar Healthy Living", fjölbýli sem er hugsað sem heilsu og öryggiskjarni þar sem er fullkomin líkamsræktarsalur, meðferðarherbergi, græn slökunarsvæði, sameiginlegur sundlaugargarður og 24 klst. beintenging við þjónustu og öryggisaðila ef eitthvað kemur upp á.

Kjarninn er 3 hæða en 46 íbúðir eru í honum. Íbúðirnar eru 1 eða 2 svefnherbergja með 1 eða 2 baðherbergjum. Íbúðir á jarðhæð eru sérstaklega hugsaðar fyrir aukið aðgengi, sbr. breiðara hurðarbil ofl.
Á efstu hæð er möguleiki á íbúðum með einkaþaksvölum.
Öllum íbúðum fylgir stæði í bílakjallara.

Stærð frá 58 m2 - 74 m2

Eignirnar eru til afhendingar í júlí 2024. Verð frá 171.400€ - 210.900€

Um svæðið:
Kjarninn er við Mil Palmeras, á milli Campoamor og Torre de la Horadada. Svæðið er þekkt fyrir fallegar sandstrendur en þær eru verðlaunaðar með Bláa fánanum.

Í nærumhverfinu er flest almenn þjónusta sbr. matvörubúð, apótek og veitingastaðir. Í ca. 10 mín. akstursfjarlægð er svo verslunarmiðstöðin Zenia Boulevard ásamt fleiru.
Þrír golfvellir eru innan 10 mín. akstursfjarlægð sbr. Campoamor Golf, Las Colinas Golf og Villamartín Golf.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.