Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0030
€. 162.000

Fallegur kjarni í byggingu í Mil Palmeras 

Kr24.400.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 67 fm
Fjöldi svefnherbergja 1 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 1 baðherbergi
48 km
1 km
-
5 km

Markaðsvirði eignar

Kr24.400.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

***Hentugar íbúðir fyrir alla þá sem þurfa aukið öryggi vegna sinnar líkamlegrar heilsu svo og greiðari aðgang að heilbrigðisþjónustu****

***Öllum viðskiptavinum Spánarheimila sem festa sér íbuðir í þessum einstaka kjarna fá Health Premium kortið frá Quiron Salud, alþjóðlega einka sjúkrahúsinu á svæðinu sem talið er með bestu sjúkrahúsunum í Evrópu. Health Premium kortið veitir forgang og betra aðgengi að persónulegri þjónustu og heilsuráðgjöf***

Hér er um að ræða algjöra nýjung á fasteignamarkaðnum á Spáni, sem nýtist fólki sem vill búa í góðu loftslagi og öruggu umhverfi og hafa gott aðgengi að allri heilbrigðisþjónustu.

Fallegur íbúðakjarni í byggingu í Mil Palmeras sem er strandasvæði staðsett rétt sunnan við La Zenia / Cabo Roig (um 10  min akstur) Mil Palmeras er frábær staðsetning á milli Dehesa de Campoamor og Torre de la Horadada þar sem stutt er í þjónustur og veitingastaði sem eruu á svæðinu og eru nokkrar mínútna rölt á næstu strönd með hjóla- og gönguleiðum.

Einnig eru fjölmargir golfvellir í 15 mín. akstri frá þessum íbúðarkjarna.

Þessi íbúðarkjarni samanstendur að fjölbýlishúsi á þremur hæðum með íbúðir á jarðhæð með einkagarð, íbúðir á miðhæð með svölum og þakíbúðir með þaksvölum. Einnig býður kjarninn upp á sameiginlega sundlaug í miðju kjarnans, sameiginlegt félagsherbergi, líkamsrækt og fleira.

Kjarninn býður upp á gott aðgengi fyrir fatlaða og fólk með skerta hreyfigetu eða fólk í hjólastólum. Til dæmis er  lyfta ofan í sundlaugina, breiðir gangar og hurðarop í sameign og sérútbúin baðherbergi. Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug svo og sameiginlegur samkomusalur fyrir ýmiss konar tímstundir svo og líkamsræktarsalur og aðstöðuherbergi fyir sjúkraþjálfara snyrtiherbergi ofl.

Það er lögð sérstök áhersla á öryggi íbúa og munu allar íbúðir hafa öryggishnapp með neyðarþjónustu allan sólarhinginn, alla daga ársins. Íbúar eru þá beintengdir hjálparmiðstöð Rauða Krossins á spáni sem veitir neyðaraðstoð ef á því þarf að halda. Kostnaður er innifalinn í húsgjöldum.

Íbúðirnar eru hannaðar með opnu skipulagi þar sem alrými er með góðri stofu/borðstofu og vel tengdu eldhúsi. Hægt að fá íbuðirnar afhentar fullbúnar með húsgögnum öllum raftækjum gegn gegn viðbótargreiðslu.

Hægt er að fá:

  • 3ja. herb. íbúðir með 2 svefnherb. og 1 baðherb.
  • 3ja. herb. íbúðir með 2 svefnherb. og 2 baðherb.
  • 2ja. herb. íbúðir með 1 svefnherb. og 1 baðherb.

Það er lyfta í húsinu. Stæði í bílakjallara og geymsla fylgir sumum íbúðunum.  Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Stærð íbúða allt frá 52 m2 - 83 m2

Verð íbúða allt frá €162.000 - €299.000

Tilbúið til afhendingar í júní 2024

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.