Markaðsvirði eignar
Kr41.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Vel staðsett og fallegt parhús með einkasundlaug í Lomas de Cabo Roig. Matvöruverslunin Iceland er í göngufæri ásamt veitingastöðum, bensínstöð og börum þar sem meðal annars er hægt að horfa á fótboltaleiki og hlusta á lifandi tónlist. Það er stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn og laugardagsmarkaðinn, í La Zenia mollið og niður á göngugötuna í Cabo Roig.
Húsið er byggt 2017 og er partur af stærri lokuðum kjarna og fylgir bílastæði í bílakjallara.
Komið er inn í fallega bjarta stofu með borðstofu og opið er inn í eldhúsið sem er vel tækjum búið. Út frá stofunni er hægt að ganga beint út í garðinn umhverfis húsið en þar er meðal annars einkasundlaug. Á jarðhæð er svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og lítil geymsla.
Á efri hæð eru tvö svefnherbergi ásamt góðu baðherbergi ásamt góðum svölum sem snúa út í sameiginlegan garð en þar má meðal annars finna leiksvæði fyrir börn og sameiginlega sundlaug.
Á þaki hússins eru svo 40 fm. þaksvalir sem búnar eru ál pergolu, vaski, sturtu og geymslusvæði.
Allt innbú fylgir utan persónulegra muna.
Frábær kaup !
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is