Markaðsvirði eignar
Kr60.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Stórt raðhús á 4 hæðum með lyftu staðsett í rólegu hverfi í Sierra de Altea.
Húsið er nýuppgert, rúmgott og mjög bjart. 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi + gestasalerni, fullbúið eldhús með innbyggðum borðkrók, stór stofa með arni og yfirbyggð verönd með fallegu útsýni yfir miðjarðarhafið. Hjónaherbergi er með fataherbergi og stóru baðherbergi. Gestaherbergin tvö deila baðherbergi með sturtu. Á efstu hæðinni er herbergi sem gæti nýst sem skrifstofa, leikherbergi eða 4. svefnherbergi, auk tveggja verönda með stórkostlegu sjávar- og fjallaútsýni. Stór einkabílskúr fyrir 2 bíla er staðsettur á jarðhæð. Lyfta tengir allar hæðir hússins. Á hverri hæð eru verönd beggja vegna hússins.
Sameiginleg sundlaug.
Um svæðið:
Hvíta strandþorpið Altea á er sannkölluð perla á Costa Blanca og hefur oft verið valið eitt af 10 fallegustu þorpum á Spáni. Vinsæli gamli bær Altea, sem er staðsettur á hæð, með fallegri kirkju og kirkjutorgi er mikilvægasta aðdráttarafl bæjarins. Hægt er að rölta um þröngar götur og njóta einstakrar fegurðar litlu húsana oft skreytt með sérstökum bohemian stíl. Þú getur verslað í einni af mörgum handverksverslunum, borðað góðan mat á einum af fjöldamörgum góðum veitingastöðum og notið stórkostlegs útsýnis yfir ströndina. Strendurnar í Altea eru fullkomnar fyrir strandfrí og laða til sín sólþyrsta ferðamenn alls staðar að úr heiminum.
Frábær staður fyrir alla sem vilja sameina sól og sjó með menningu og sögu.