Markaðsvirði eignar
Kr31.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Fallegar íbúðir í byggingu við La Serena golfvöllinn í útjaðri bæjarins Los Alcázares. Í bænum er öll þjónusta til staðar og skammt er niður að ströndum Mar Menor innhafsins.
Um er að ræða íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Gengið er inn í opið rými þar sem stofa, borðstofa og eldhús renna saman í eitt. Úr stofu er útgengt á verönd af 1. hæð og svalir af 2. hæð. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni, annað þeirra beint inn af hjónaherbergi. Á 1. hæð er verönd og garður sem samtals er 24 fm en á 2. hæð 11 fm svalir. Stæði í bílakjallara og geymsla fylgja hverri íbúð.
Íbúðakjarninn samanstendur af 32 íbúðum í fjölbýli með ýmist 2 eða 3 svefnhergjum sem og 9 einbýlishúsum. Þetta eru falleg, nútímaleg og stílhrein hús með góðum sameiginlegum sundlaugargarði og græn svæði allt um kring. Glæsilegt útsýni er yfir La Serena golfvöllinn og Mar Menor innhafið.
Verð frá 209.000 €
Nánar um svæðið:
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]