Markaðsvirði eignar
Kr130.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Fallegt einbýli staðsett í hágæða og eftirsóttu íbúahverfi í Las Colinas. Svæðið er rómað fyrir fegurð og er hvert heimili þar staðsett og hannað með það fyrir augum að húsakynni falli vel að landslaginu og að íbúar njóti kyrrðar og næðis.
Las Colinas er staðsett við hlíðar Dehesa de Campoamor og þar má finna svæði sem þekur 330 hektara milli gróinna hlíða, sjávarútsýni umlukinn og við golfvöll sem hefur verið kjörinn golfvöllur ársins á Spáni nokkrum sinnum.
Eignin situr á stórri 976 m2 lóð og er með flotta verönd með einkasundlaug og bílakjallara með pláss fyrir 2 bíla.
Húsið er 140 m2 á einni hæð með 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi ásamt opnu og björtu alrými með nútímalegu og fullbúnu eldhúsi og rúmgóðri borðstofu/stofu með aðgengi út á verönd.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is