Markaðsvirði eignar
Kr74.500.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Falleg lúxus villa í Quesada sem er snyrtilegur og rólegur bær rétt fyrir utan Torrevieja. Villan er staðsett nálægt aðalgötunni í Quesada sem býður upp á flesta þjónustu og hefur marga og fjölbreytta veitingastaði.
Villan verður á tveimur hæðum með þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi en hægt verður að bæta við 75m2 kjallara og með því tveim auka svefnherbergjum og einu baðherbergi. Lóðin sem villan verður byggð á er 300m2 og mun verða bílastæði inni á lóðinni.
Á fyrstu hæð er nútímalegt eldhús fullbúið öllum tækjum opið til stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi. Á efri hæð er master svíta með einkabaðherbergi ásamt 39m2 þaksvölum sem hefur útsýni til sjávar og Laguna de La Mata.
Á fyrstu hæð er 25m2 verönd þar sem hægt er að bæta við einkasundlaug fyrir 9.000€.
Í öllum svefnherbergjum eru innbyggðir fataskápar, inni á baðherbergjum er gólfhiti og fylgja með speglar og sturtugler. Einnig er fyrirfram uppsetning á hleðslustað fyrir rafbíla innifalin.