Markaðsvirði eignar
Kr60.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
110 m2 íbúð á 5 hæð í íbúðarblokk með lyftu, staðsett í fyrstu línu við hafið í hjarta Torreviejaborg með fjölmarga veitingastaði og þjónustur í göngufæri. Torrevieja er einn vinsælasti aðfangastaður ásamt ferðamanna á svæðinu og býður borgin upp á margskonar afþreyingar eins og götumarkaði, Tívolí og sundlaugargarð.
Nýlega er búið að endurnýja alla íbúðina og er hún með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, hjónaherbergið er með einkabaðherbergi (en-suite). Stórt og opið alrými með flottu eldhúsi og rúmgóðri stofu með aðgengi út á svalir sem hafa fallegt sjávarútsýni.
Loftkæling í öllum herbergjum, fullbúið eldhús og geymsla.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.