Markaðsvirði eignar
Kr37.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Afar falleg íbúð á jarðhæð í þessum vinsæla og vel staðsetta íbúðakjarna í Playa Flamenca. Húsið stendur á hornlóð og íbúðinni fylgir feiknastór garður/verönd sem snýr í suður og er samanlögð stærð íbúðar og útisvæðis 200 fm. Öll þjónusta og afþreying er í seilingarfjarlægð og innan við kílómetri er niður á strönd.
Um er að ræða eign með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, opinni stofu/borðstofu og hálfopnu eldhúsi. Lítil geymsla/þvottahús er innan af eldhúsi. Eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð á smekklegan hátt og búið er að setja glerlokun á verönd við inngang. Sólarsellur hafa jafnframt verið settar upp til að draga úr rafmagnskostnaði. Veröndin er mjög stór og býður upp á marga möguleika við að njóta sólar og samveru. Glæsilegur sundlaugargarður er í sameign ásamt líkamsræktaraðstöðu og sauna.
Glæsileg eign á frábærum stað! Verð 254.900 €
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is