Markaðsvirði eignar
Kr69.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spanárheimili kynnir:
Falleg einbýlishús í byggingu á mjög góðum stað á Orihuela Costa svæðinu með veitingastaði, matvörubúðir og fleiri þjónustur stutt frá. Þú ert í nokkrar mínútur að keyra niður að fallegu ströndum Orihuela Costa svæðisins og að vinsælu verslunarmiðstöðinni Zenia Boulevard ásamt fjölmörgum golfvöllum á svæðinu.
Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með þaksvölum. Húsin verða hönnuð með nútímalegum og hágæða stíla með opnu skipulagi.
Eignirnar verða 158 m2 með 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi, 2 af svefnherbergjunum verða en-suite með einkabaðherbergi.
Það verður opið alrými á jarðhæðinni með flottu eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu með aðgengi út á veröndinna með einkasundlauginni. Þú finnur einnig eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi á jarðhæðinni.
Efri hæðin samanstendur af tveimur svefnherbergjum, bæði en-suite með aðgengi út á svalir og svo er stigi upp á stórar þaksvalir.
Innkeyrsla og bílastæði á lóðinni.
Það fylgja öll raftæki eins og ofn, örbylgjuofn, ísskápur o.s.frv. með kaupum á þessum eignum.
Verð frá 469.000 € - 589.000 €.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]
Nánar um svæðið
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.