Markaðsvirði eignar
Kr163.500.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýr kjarni í byggingu í Finestrat sem samanstendur af 15 einbýlishúsum, með 3 svefnherbergjum og baðherbergjum, stofu - borðstofu og eldhúsi og með möguleika á kjallara. Öll húsin eru byggð á stórum einkalóðum með einkasundlaug og garði með grasi og sjálfvirku vökvunarkerfi.
Byggingarnar skera sig fyrir hönnun, gæði og þægindi og eru á besta svæði Sierra Cortina, með óviðjafnanlegu útsýni yfir Benidorm og Miðjarðarhafið, og aðeins nokkrum mínútum frá ströndum þess.
Einbýlishúsin hafa verið hönnuð af arkitektum og verkfræðingum fyrir hámarks orkusparnað með því að nýta náttúruauðlindir. Þau verða byggð með efnum og tækjum í hæsta gæðaflokki frá bestu vörumerkjum markaðarins. Vörumerki eins og Florim, Villeroy & Boch, Hansgrohe, Bosch, BTicino, Cortizo eða Blum.
Nánar um svæðið:
Finestrat er við Benidorm sem er einn af vinsælli ferðamannastöðum Spánar, staðsettur í Valencia-héraði og telst höfuðborg Costa Blanca. Í dag er bærinn byggður hágæða hótelum og skýjakljúfum sem taka á móti jafn mörgum ferðamönnum erlendis frá og Spáni. Flestar verslanir og veitingahús eru í gamla bænum, en sá hluti var áður virki. Þröngar göturnar búa yfir miklum sjarma og mynda eins konar völundarhús stræta, gatna og innskota sem geyma fjöldann allan af áhugaverðum litlum búðum auk veitingahúsa og bara sem bjóða upp á gómsæta smárétti eða Tapas. Í Benidorm má finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er afar fjölbreytt. Hvort sem um fjárfestingu eða afslöppun er að ræða er öruggt að Benidorm tekur sérstaklega vel á móti þeim sem kaupa fasteign á staðnum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]