Markaðsvirði eignar
Kr43.200.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Falleg einbýlishús á einni hæð með þaksvölum. Húsin eru vel staðsett með tilliti til þjónustu í bænum San Fulgencio og strendur La Marina og Guardamar eru ekki langt undan.
Gengið er inn í opið rými sem inniheldur stofu, borðstofu og eldhús. Lítil geymsla/þvottahús er inn af eldhúsi. Þrjú svefnherbergi eru í eigninni og 2 baðherbergi og er annað baðherbergið inn af stóru hjónaherbergi. Þaksvalir eru 42 fm þar sem tilvalið er að njóta sólar og samveru allan daginn. Góður garður með bílastæði á lóð og möguleiki er að bæta við einkasundlaug.
Verð frá 289.900 €
Nánar um svæðið:
San Fulgencio er lítill bær sem staðsettur er milli Guardamar og Santa Pola. Í sunnanverðu Alicante-héraði er bær þar sem finna má íbúðabyggð sem þekkist undir nafni Urbanización La Marina. Þau sem þangað fljúga eiga tvo valkosti; flugvellirnir í Alicante og svo flugvöllurinn í Murcia eru báðir í aðeins 20 mínútna akstursfjarlægð frá San Fulgencio. Í aðeins 6 kílómetra fjarlægð frá ströndu er hér að finna frábært úrval fasteigna sem standa í nágrenni við fullkomna þjónustu og alla innviði.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]