Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0811
€. 383.000

Falleg einbýli í rólegu umhverfi í Polop de la Marina

Kr57.400.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 160 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
51 km
8 km
2 km
15 km

Markaðsvirði eignar

Kr57.400.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynna:

Einbýlishúskjarna í Polop de la Marin staðsett á milli sjávar og fjalla, með útsýni yfir Altea-flóann, miðjarðarhafið og fjöllin. Hér getur þú notið miðjarðarhaflífsins til fulls.

Bay View er íbúðabyggð sem er hönnuð þannig að öll húsin eru með útsýni í sömu átt og allir íbúar geta notið víðáttumikils sjávar- og fjallaútsýnis. Að auki gera stóru gluggarnir þér kleift að sameina daglega lífið bæði innan og utan, það má segja að landslagið og útsýnið verði þannig hluti af af heimili þínu.

Þú getur valið á milli tveggja og þriggja svefnherbergja eigna, húsin koma öll með stórri stofu, borðstofu og opnu eldhúsi ásamt 2 baðherbergjum og einu gesta wc.

Stærð frá 160 m2

verð frá 383.000 evrum

 

Um svæðið:

Þessi nútímalegu  lúxusvillur eru staðsettar við Polop bæinn sem er rétt fyrir ofan Benidorm og Altea, aðeins inn í land í fallegum fjallagarði á norður Costa Blanca.
Polop er lítill bær með miklum sjarma, þröngar fallegar göngugötur og falleg gönguleið upp á hæðina þar sem rústir af kastala eru og útsýnið hreint út sagt stórkostlegt.
Frægi spænski rithöfundurinn Gabriel Miró Ferrer lýsti Polop sem „vin á Costa Blanca“. Það er jafnvel meira satt í dag en það var á tímum Miros. Þessi fallegi bær er í aðeins 15 kílómetra fjarlægð frá skærum ljósum, skemmtanalífinu og háhýsum á Benidorm en gæti ekki verið meira öðruvísi.

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.