Markaðsvirði eignar
Kr20.300.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Heillandi íbúð á einu besta svæði Punta Prima, í aðeins 2 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni.
Þessi íbúð var algjörlega endurnýjuð (rafmagn, pípulagnir, gólf, eldhús og baðherbergi) fyrir nokkrum árum. Eignin er með 3 svefnherbergjum, 1 baðherbergi með vatnsnuddsturtu, rúmgóð og björt stofa/borðstofa, aðskilið eldhús þar sem hægt er að komast út á stórar og bjartar svalir sem eru með útsýni yfir sameiginlegan garð. Beinn aðgangur að ströndinni.
Frábær staðsetning, á rólegum stað, en á sama tíma nálægt allri nauðsynlegri þjónustu og þægindum: matvöruverslunum, apótekum, veitingastöðum, börum og ekki langt frá golfvöllum.
Aðeins nokkrar mínútur til Torrevieja og 45 mínútur frá Alicante og Murcia flugvöllum.
Tilvalið sem fjárfesting, annað heimili og jafnvel til að búa allt árið um kring. Komdu og skoðaðu, það er ekki mikið úrval af íbúðum svona nálægt ströndinni þannig þetta er frábært tækifæri.