Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1216
€. 1.495.000

Einstök lúxus villa á Las Colinas

Kr225.000.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 230 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 4 baðherbergi
46 km
6 km
1 km
-

Markaðsvirði eignar

Kr225.000.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir: Glæsileg lúxus villa á Las Colinas golfsvæðinu. Svæðið er rómað fyrir fegurð og er hvert heimili þar staðsett og hannað með það fyrir augum að húsakynni falli vel að landslaginu og að íbúar njóti kyrrðar og næðis. Staðsetningin getur vart verið betri; hlíðar hins friðsæla dals eru vaxin sítrónu- og appelsínutrjám.

Stutt er einnig í flesta þjónustu og aðeins eru um 15 mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Þessi einstaka villa er sérhönnuð fyrir fagurkera. Með það í huga að geta slakað á og notið náttúrunnar þá er þessi eign með allt sem hægt er að ímynda sér. Byggð á 1550m2 einkalóð þar sem er stór garður, einkasundlaug og einnig eru þaksvalir ofan á húsinu. Eignin er á tveimur hæðum og það er lyfta byggð inni í húsinu.

Á jarðhæð er flott forstofa sem leiðir inn í rúmgóða stofu. Frá eldhúsi er opið til stofu og borðstofu og frá stofunni er gengið út á veröndina. Á jarðhæð er líka eitt svefnherbergi með einkabaðherbergi og gestabaðherbergi. Á neðri hæð eru 2 svefnherbergi og eru þau bæði með einkabaðherbergi. Einnig er stórt þvottahús og geymsla. Frá báðum svefnherbergjum á neðri hæð er gengið út á sameiginlega verönd.

Þessi eign er svo sannarlega einstök og staðsett á frábæru svæðu sem er fullkomið fyrir golfarann.

Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferð á sérstöku tilboði á kr 119.900 pr mann. Um beint flug er að ræða ásamt gistingu sem er innifalið í verðinu en skoðunaferðargjaldið verður endurgreitt að fullu ef af kaupum á draumeigninni verður.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.