Markaðsvirði eignar
Kr202.400.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsileg einbýli í Finestrat með stórkostlegu skyline útsýni yfir Benidorm og Miðjarahafið.
Um er að ræða frábærlega staðsett einbýlishús í hæðunum ofan við Benidorm. Húsin eru með 4 svefnherbergjum og 5 baðherbergjum.
Um er að ræða einstakar lúxuseignir sem búnar eru því allra besta í hönnun, byggingarstíl og útbúnaði. Húsin er á fjórum hæðum þar sem neðsta hæðin er hugsuð sem afþreyingarhæð en samt með möguleika á auka herbergjum og þvottahúsi. Efsta hæðin er svo þaksvalir á tvo vegu með einstöky skyline útsýni yfir Benidorm og Miðjarahafið. Á miðhæð er inngangur, eldhús, baðherbergi og setustofa mðe aðgengi út á stóra verönd. Á 2. hæð er svo svefnherbergja álman.
Húsin eru búin lyftu, infinity sundlaug, marmara í hólf og gólf, Porcelanosa innréttingum á baðherbergjum og eldhúsi.
Viðhaldslítill garður, einkastæði innan lóðar og rafdrifið hlið.
Verð 1.350.000€
Nánar um svæðið:
Finestrat er við Benidorm sem er einn af vinsælli ferðamannastöðum Spánar, staðsettur í Valencia-héraði og telst höfuðborg Costa Blanca. Í dag er bærinn byggður hágæða hótelum og skýjakljúfum sem taka á móti jafn mörgum ferðamönnum erlendis frá og Spáni. Flestar verslanir og veitingahús eru í gamla bænum, en sá hluti var áður virki. Þröngar göturnar búa yfir miklum sjarma og mynda eins konar völundarhús stræta, gatna og innskota sem geyma fjöldann allan af áhugaverðum litlum búðum auk veitingahúsa og bara sem bjóða upp á gómsæta smárétti eða Tapas. Í Benidorm má finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er afar fjölbreytt. Hvort sem um fjárfestingu eða afslöppun er að ræða er öruggt að Benidorm tekur sérstaklega vel á móti þeim sem kaupa fasteign á staðnum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]