Markaðsvirði eignar
Kr62.600.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
"Riviera design resident" sem er glæsilegur 41 einbýlishúsa kjarni á besta stað í Ciudad Quesada, rétt við verslunina Food Co.
Húsin sem eru á einni hæð verða mjög vönduð og hönnun einstök. Í göngufæri við þessar eignir er kjarni verslana, veitingastaða, apóteka ofl. ofl. Húsin eru L laga, 125 m2 eða 150 m2 og lóðirnar eru frá 336 m2 til 420 m2.
Húsin eru öll með einkasundlaug og þaksvölum. Þau eru 3. svefnherbergja og 2. baðherbergja en hægt er að breyta skipulagi með byggingaraðila.
Húsin eru afhent með fullbúnu eldhúsi, LED lýsingu inni og úti, hita í öllum gólfum, og sjálfvirku þráðlausu stjórnkerfi í gegnum netið.
Verð frá 420.000 evrur + kostnaður.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]
Nánar um svæðið:
Ciudad Quesada – er staðsett um það bil 8 kílómetra inni í landið frá Costa Blanca ströndinni við Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð og næsta strönd er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Miðbær Ciudad Quesada er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er það að finna gott úrval íbúða.