Markaðsvirði eignar
Kr181.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Lúxus villur á hinu stórglæsilega íbúðarsvæði Santa Rosalía. Einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þá þjónustu sem hægt er að hugsa sér.
Um er að ræða 14 einstaklega vel hannaðar og nútímalegar villur á tveimur hæðum með einkasundlaug og bílastæði inni á lóðinni. Einnig er stór 150 m2 kjallari í hverri eign. Villurnar eru ca. 199 m2 og lóðir allt frá 392 m2 - 745 m2.
Gengið er inn í stóra forstofu og út frá henni er lítið gestaklósett. Þegar gengið er úr forstofunni tekur við stórt og bjart alrými með nútímalegu eldhúsi sem er opið til stofu og borðstofu. Frá stofunni er gengið út á fallega veröndina en þar er 18 m2 einkasundlaug og flott útisvæði þar sem hægt er að njóta sólarinnar allan daginn, allt árið. Þegar gengið er framhjá eldhúsinu finnur þú en-suite svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og einkabaðherbergi.
Stiginn niður í kjallara og upp á efri hæðina liggur bakvið eldhúsið. Á efri hæðinni finnur þú annað baðherbergi og 3 önnur svefnherbergi. Hjónaherbergið er með stóran "walk-in" fataskáp og einkabaðherbergi. Það eru stórar svalir á þessari hæð sem hægt er að ganga út á frá tveimur af þremur svefnherbergjum.
Síðast en ekki síst er svo stór kjallari með einu baðherbergi, stóru og opnu rými, þvottahúsi og tveimur herbergjum sem hægt er að nýta sem geymslur, vinnuherbergi eða annað sem hentar.
Verð frá 1.210.000€ - 1.400.000€
Meira hægt að sjá um svæðið hér: https://spanarheimili.is/santarosalia/
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is