Markaðsvirði eignar
Kr61.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýtt fullbúið einbýlishús á Vistabella golf svæðinu og eru öll húsgögn, raftæki í eldhúsi, flatskjár, útihúsgögn og allt sem sést á myndunum innifalið í verðinu . . . rúsínan í pylsuendanum - húsið er tilbúið til afhendingar !
Hér er um að ræða einstaklega glæsilegt einbýli sem stendur við lítinn kjarna 20 sérhæða en í sameiginlegum garði er sameiginleg sundlaug og grænt svæði sem eigendur fá afnot af. Þetta er eina einbýlishúsið við þennan kjarna.
Einbýlið er 151 m2 og er með stórum einkagarði ásamt einkasundlaug, útisturtu og bílastæðum innan lóðar fyrir 2-3 ökutæki. Rafmagnshlið með fjarstýringu er innifalið.
Jarðhæðin er með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum ásamt nútímalegu eldhúsi sem er opið til stofu/borðstofu og frá stofunni er aðgengi út á verönd. Öll tæki í eldhúsi eru innifalin. Annað svefnherbergið er með en-suit baðherbergi og fataherbergi. Að sama skapi er sér þvottahús á jarðhæð.
Efri hæðin er með mjög stóru hjónaherbergi með einkabaðherbergi, fataherbergi og aðgengi út á rúmgóðar suður svalir. Á svölunum er fullkomið útieldhús með mjög góðu skápaplássi, ísskáp og gasgrilli.
Vistabella golfsvæðið er öryggisvaktað 24/7 og er í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Einstakt golfvallarumhverfi með öllum þægindum svo sem verslunum, veitingastöðum og fyrsta flokks aðstöðu til íþróttaiðkana.
Verð með öllu inniföldu 420.000 € + 13-14% (vsk./skjalakostnaður)
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
KAUPAUKI: Kaupandi þessarar eignar fær 20 golfhringi á Vistabella.