Markaðsvirði eignar
Kr67.200.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Einbýli í hjarta La Olla í Altea. Stutt er í flesta þjónustu og aðeins eru um 20 mínútur að keyra til Benidorm. Þar er meðal annars að finna flott úrval af veitingastöðum, börum og verslunum. Einnig er stór skemmtigarður í Benidorm, Terra Mítica og líka vatnsleikjagarður, Aqualandia.
Þessi eign er byggð á 260 m2 lóð þar sem er verönd og einkasundlaug þar sem er hægt að njóta sólarinnar allan ársins hring. Um er að ræða einbýli með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Það er nýbúið að taka þessa eign í gegn og þessi eign er því svo sannarlega einstök.